allt að gerast og blogg letin vonandi á enda

Jæja sælt veri fólkið.
eins og þið vitið flest öll þá heiti ég Annel Helgi og er úr kópavoginum, það lítur nú allt út fyrir það þessa dagana að ég sé að fara að kveðja kópavoginn eða eins og við strákarnir kölluðum þetta K.Ó.P hátt og skýrt. Ég get nú ekki sagt að það sé draumurinn en svona er þetta bara þar sem ég er að kaupa mér íbúð þá eru íbúðirnar í kópavogi of dýrar fyrir mig :( en svona er það bara haha ég er að fara að flytja í miðbæinn sem sagt og vonandi í risíbúð á leifsgötu sem er rétt hjá hallgrímskirkju eða það er allavegna íbúðinn sem við erum með auga á þessa stundina. Ég og Jóa mín ætlum að flytja saman inn í íbuðina sama hvaða íbúð það verður sem ég fæ og erum við ennþá ótrúlega hamingjusöm saman :) ...... Ég hætti í vinnuni minni í fyrradag og er ég núna að leita mér að vinna sem felst í því að selja föt og það er það eina sem ég vill gera þessa stundina, ég er á leiðinni í atvinnuviðtal hjá LEVI´S og vonandi fæ ég það starf, ég vona svo mikið að ég fái það starf því ég á eiginlega ekkert fatamerki nema að það sé LEVI´s ég á t.d einar gallauxur sem eru ekki frá LEVI´S svo ég vona innilega að ég fái þetta starf. En nóg um föt þar sem ég veit vel að meirihlutinn sem les þetta nennir ekki að lesa um það hehe. Annars er ég að vinna í því í 100 skiptið að taka þetta bílpróf og vona ég að ég þurfi ekki að reyna á það i 101 skiptið ;) ég held að þetta sé komið gott í þetta skiptið og ætla ég að kveðja með nokkrum myndum og áskorun til hans pabba míns því eg var að fá símhringingu frá heimasíðusamtökunum og voru þau að segja að pabbi minn ætti einhverja elstu blogg færslu á netinu þessa dagana og væri húnj byrjuð að lykta eins og matarlyktin hjá henni gundý ömmu minni heitinni sem angaði alltaf um alla kópavogsbraut 4 hahahahaha. vonandi fer hann bara að gera eitthvað í þessu kær kveðja Annel Helgi :) OG JÁ ÉG GLEYMDI AÐ SEGJA YKKUR ÉG VAR AÐ KOMAST INNÍ AÐALKEPPNI HERRA ÍSLAND OG VONAST ÉG EFTIR STUÐNING YKKRA ALLRA GEGNUM SÍMAKOSTNINGU ÞANN 23 NÓVEMBER ÞEGAR KEPPNIN VERÐUR HALDIN Á BROADWAY.

